AGILIS 2011
Agile stjórnun og tækni
AGILIS ráðstefnan er orðin árviss viðburður í íslenskri upplýsingatækni. Fimmta ráðstefnan verður haldin þann 16. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica Hótel.
Í ár verða tvær fyrirlestrarbrautir:
Agile stjórnun og Agile verktækni. Einnig verður Opið rými (e. Open Space - sjá lýsingu hjá Agile Open) þar sem ráðstefnugestir fá tækifæri til að velja sér umræðuefni og ræða í litlum hópum.
Skoðaðu dagskrá AGILIS 2011.
Að venju verða líka námskeið í ráðstefnuvikunni. Skoðaðu hvað er í boði.
Fyrir hvern er AGILIS 2011?
Ráðstefnan er fyrir allt það fólk sem hefur áhuga á að læra um:
- Innleiðingu og þróun á Agile aðferðum
- Agile verktækni
- Agile vörustjórnun
- Prófanir í Agile teymum
- Listina að rækta upp öflug teymi
- Agile vinnukerfi
- Hlutverk leiðtoga/stjórnenda í Agile umhverfi
Fókusinn verður á praktíska reynslu, bæði á fyrirlestrarbrautunum og Opna rýminu.









